Tveir leikmenn Elliða í nýja hvíta búningnum við mark á Fylkisvelli í kvöldsól

Elliði

Fylgdu Elliða á Instagram

Tímabilið 2026 í tölum

4. deild karla

Elliði á vef KSÍ

Lokastaðan í 4. deild karla

Álftanes vann deildina með 51 stig. Elliði endaði í 5. sæti, efst liðanna í neðri hlutanum.

#LiðLUJTMörk+/-StigSíðustu 5

L leikir · U unnið · J jafntefli · T tap. Síðustu 5 leikir, nýjasti lengst til hægri. 4. deild karla á vef KSÍ →

Sjá öll úrslit Elliða 2026

Allir 18 deildarleikir Elliða sumarið 2026, nýjustu fyrst.

    Leikskýrslur á vef KSÍ →

    Natan Hjaltalín í Elliða-peysu
    Leikmaður ársins 2026

    Natan Hjaltalín

    Natan var valinn leikmaður ársins hjá Elliða tímabilið 2026. Hann var næstmarkahæsti leikmaður liðsins í deildinni og lykilmaður í sóknarleiknum allt sumarið.

    Treyjan

    Elliði tók í notkun glæsilega búninga frá Macron tímabilið 2026. Aðalstyrktaraðili er steinsmiðjan REIN.

    Keppnisbúningar Elliða fyrir tímabilið 2026–2027 voru sérhannaðir fyrir félagið í samstarfi við Macron á Íslandi. Við hönnunina var innblástur sóttur í Elliðaárnar og tengsl félagsins við Árbæinn.

    Á búningunum er teikning eftir Tómas Helga hjá Veiðislóð sem vísar til Elliðaánna og gefur búningunum sérstakt yfirbragð. Sama teikning rennur í bakgrunni þessarar síðu.

    Tveir leikmenn laga hvítu treyjurnar á Fylkisvelli
    Hvít Elliða-treyja með teikningu af Elliðaánum og appelsínugulum röndum
    Leikmaður í svörtum Elliða-búningi fyrir framan Árbæjarlaug
    Tveir leikmenn í hvíta búningnum við mark í sólsetri
    Leikmaður í hvítri treyju situr í appelsínugulum stól á vellinum

    Um Elliða

    Knattspyrnufélagið Elliði er knattspyrnufélag úr Árbænum í Reykjavík sem á rætur sínar að rekja til ársins 2002. Félagið starfar í nánum tengslum við Íþróttafélagið Fylki og hefur um árabil verið vettvangur fyrir knattspyrnumenn úr hverfinu, ekki síst þá sem hafa alist upp hjá Fylki og vilja halda áfram að stunda knattspyrnu í meistaraflokki.

    Utandeild

    Saga Elliða hófst í utandeildinni í knattspyrnu, þar sem félagið náði umtalsverðum árangri og skipaði sér fljótlega í hóp sterkustu liðanna. Árið 2005 varð Elliði deildarmeistari í fyrsta sinn og fylgdi þeim árangri eftir með bikarmeistaratitli árið 2006 og öðrum deildarmeistaratitli árið 2007.

    Á næstu árum hélt velgengnin áfram. Elliði varð meistari meistaranna árið 2008, bikarmeistari árið 2009 og deildarmeistari í þriðja sinn árið 2010. Árið 2011 bætti félagið svo við öðrum titli í keppni meistara meistaranna. Alls vann Elliði sjö titla í utandeildinni á árunum 2005–2011.

    Á þessum árum léku meðal annars fyrrverandi úrvalsdeildarmennirnir Andri Marteinsson, Finnur Kolbeinsson og Kristinn Tómasson með félaginu.

    Blaðsíða úr bókinni Íslensk knattspyrna 2005 með fyrirsögninni Elliði varð meistari
    Úrslit utandeildarkeppninnar 2005 eins og þau birtust í bókinni Íslensk knattspyrna 2005.
    Leikmenn Elliða í appelsínugulum búningum fagna með verðlaunapeninga og bikar
    Meistarar 2010.

    Deildarkeppni

    Árið 2013 hóf Elliði þátttöku í 4. deild karla á vegum Knattspyrnusambands Íslands. Þar með hófst nýr kafli í sögu félagsins, sem hafði þá þegar verið starfandi í rúman áratug.

    Einn stærsti áfanginn í sögu Elliða kom árið 2019 þegar félagið tryggði sér sæti í 3. deild karla. Elliði lagði Hvíta riddarann að velli, 4–1, í undanúrslitum 4. deildar og tryggði sér þar með sæti í deildinni fyrir keppnistímabilið 2020. Elliði lék jafnframt til úrslita um 4. deildarmeistaratitilinn sama ár en laut þar í lægra haldi fyrir Ægi.

    Í kjölfarið lék Elliði fimm tímabil samfellt í 3. deild, frá 2020 til 2024. Eftir fall úr deildinni haustið 2024 hefur félagið leikið í 4. deild karla.

    Liðsmynd Elliða 2013 í appelsínugulum búningum
    Fyrsta tímabilið í deildarkeppni KSÍ.
    Byrjunarlið Elliða í hvítum búningum fyrir leikinn gegn Hvíta riddaranum
    Byrjunarliðið gegn Hvíta riddaranum er Elliði tryggði sér sæti í 3. deild. 11. september 2019.
    Leikmenn Elliða fagna í búningsklefanum eftir sigurinn
    Fögnuður eftir leik.

    Leikjahæstir frá upphafi

    #LeikmaðurLeikirMörkTímabilÁr